Greining Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum er nú unnin í tíunda sinn og eru Framúrskarandi fyrirtæki 2019 um 3% íslenskra fyrirtækja.
Framúrskarandi fyrirtæki 2018 & 2019
Meginmarkmið greiningarinnar er að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi.
Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum. Það er því eftirsóknarvert að komast á lista Framúrskarandi fyrirtækja og njóta þannig aukins trausts.
BSI á Íslandi ehf er stolt af því að vera á lista Creditinfo árin 2018 & 2019. Við þökkum samstarfsaðilum og starfsmönnum okkar árangurinn.