Við skoðun gagna er farið yfir innsend gögn og athugað hvort og undir hvað tilskipanir viðkomandi vara fellur með tilliti til CE merkingar. Niðurstöðum verður skilað í skýrslu með tillögum um næstu skref.
Verð:
Verð þjónustunnar fer eftir umfangi vörunnar sem um ræðir.
Áætlaður tími við skoðun gagna eru 8-15 klukkustundir. Verð pr. tíma er kr. 15.900 kr. án vsk.
Skilmálar:
Verklok eru háð því að öll umbeðin gögn berist frá verkkaupa. BSI á Íslandi áskilur sér rétt til að ljúka verkefni með stöðuskýrslu ef umbeðin gögn berst ekki innan 30 daga. Fyllsta trúnaðar verður gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið verður með. Afhending niðurstöðuskýrslu er háð greiðslu fyrir þjónustuna.