Frá
til
Námskeiðslýsing
Með þátttöku á námskeiði okkar færðu reynslu í skipulagningu, framkvæmd, skýrslugerð og eftirfylgni við innri úttektir á ISO 14001. Sérfræðingur okkar mun einnig aðstoða þig við að útfæra Innri úttektir sem hæfa þínu fyrirtæki.
Efnisþættir námskeiðs
- Uppsetning og skilgreiningar á ISO 14001
- Skilyrði fyrir umhverfisstjórnun
- Skipulagning innri úttekta
- Gerð gátlista
- Framkvæmd innri úttekta
- Niðurstöður og skýrslugerð
- Innleiðing úrbóta
- Eftirfylgni
- Áframhaldandi umbætur
- Reynslusögur (Case Studies)
- Hópavinna

Ávinningur námskeiðs
- Að þátttakendur öðlist yfirsýn og skilning á kröfum innri úttekta á stjórnkerfi fyrir umhverfisstjórnun.
- Nýtt sérþekkingu sína og hæfni til að skipuleggja og framkvæma innri úttektir skv ISO 14001 í samræmi við innri úttektir í ISO 19011
- Haft skilning á því hvernig ferli innri úttekta auðveldar stöðugar umbætur á umhverfisstjórnun
- Innleitt aðferðafræði til að hrinda umbótum í framkvæmd
- Byggt upp vitund og skilning innan fyrirtækisins um mikilvægi umhverfismála
- Fagleg nálgun við innri úttektir auðveldar fyrirtækjum að bera kennsl á núverandi og mögulega veikleika í stjórnunarkerfi
- Gerir fyrirtækinu kleift að grípa til aðgerða áður en skaðinn er skeður
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir starfsmenn, æðstu stjórnendur ofl. skipulagsheilda sem eru með umhverfisstjórnunarkerfi.
- Stjórnendur fyrirtækja og þá sem starfa samkvæmt kröfum ISO 14001.
- Starfsmenn innri úttekta.
- Fyrir þá sem vilja sérfræðiþekkingu og skilning á innri úttektum ISO 14001.
- Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnunarkerfisstöðlum.
- Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag.
- Stjórnendur og starfsmenn sem bera ábyrgð á innri úttektum á ISO 14001.
Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá 9.00 – 16.30
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Örn Alexandersson frá BSI
Verð: 165.000 kr.
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námsskeiðsgögnum.
Þátttakendur fá skírteini frá BSI að námskeiði loknu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendið tölvupóst á namskeid@bsiaislandi.is
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!