Á undarförnum árum hafa umhverfismál orðið æ mikilvægari öllum fyrirtækjum. Hagsmunaaðilar geta ekki litið framhjá þessari þróun. Æðstu stjórnendur fyrirtækja bera ábyrgð á að taka upp stjórnskipulag umhverfismála. Innleiðing umhverfisstjórnunar krefst þekkingar sérfræðinga.
Aflaðu þér sérþekkingar á Innleiðingu á stjórnkerfi
fyrir umhverfisstjórnun á skipulagðan og skilvirkan hátt
í samræmi við ISO 14001:2015
ISO 14001:2015 / Innleiðing á umhverfisstjórnkerfi
Námskeiðslýsing
Þetta tveggja daga námskeið gefur þátttakendum nauðsynlega grunnþekkingu til að geta tekið þátt í þróun og innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis á sínum vinnustað.
Þátttakendur munu, í lok námskeiðsins, hafa þekkingu til að gera áætlanir sem uppfylla kröfur alþjóðastaðla. Þar með getur fyrirtækið skráð formlega aðgerðaáætlun sína samkvæmt ISO14001 og/eða EMAS
Fyrir hverja er námskeiðið?
Stjórnendur sem bera ábyrgð á umhverfi, gæðum, heilsu og öryggi.
Stjórnendur/verkefnastjórar sem eru ábyrgir fyrir þróun og stjórnun breytinga.
Að auki er námskeiðið kjörið fyrir alla starfsmenn fyrirtækja sem taka þátt í uppbyggingu og innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis.
Ávinningur fyrirtækis
Gerir fyrirtækjum kleift að meta stöðu umhverfisstjórnunar og bera stjórnkerfið saman við það sem er efst á baugi í málaflokknum.
Eykur hæfni til að þróa og innleiða umhverfisstjórnunaráætlun auk formlegrar skráningar samkvæmt ISO 14001 / EMAS.
Uppbygging námskeiðsins
Dagskrá námskeiðsins byggir á samþættingu fræðilegrar umfjöllunar um umhverfisstjórnun og hagnýtra dæma auk æfinga (case study) þar sem þátttakendur fá tækifæri til að spreyta sig á raunverulegum tilvikum á innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis.
Helstu umfjöllunarefni
Skuldbinding æðstu stjórnenda við innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis.
Markviss úttekt, hvar fyrirtækið er statt með tilliti til umhverfisstjórnunar?
Skipulagning umhverfisstjórnunar innan skipulagsheildar
Skipulagning innleiðingarferils á umhverfisstjórnunarkerfi
Þróun umhverfisstefnu
Þróun og skilgreining mikilvægra markmiða og áfanga
Greining og innleiðing mælanlegra þátta umhverfisáhrifa
Skilvirk áætlun samskipta og þjálfunar um umhverfismál
Eftirlit með innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfisins
Auka skilning á reglubundnum úttektum umhverfismála
Skapa þekkingu á vottun og eða sannprófun umhverfisstjórnunarkerfa
Næstu skref – innleiða stöðugar umbætur umhverfisstjórnunarkerfisins
Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá 9.00 – 17.00
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi
Verð: 158.000 kr.
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námsskeiðsgögnum.
Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.
20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.
Þátttakendur fá skírteini frá BSI að námskeiði loknu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendið tölvupóst á namskeid@bsiaislandi.is
ISO 14001:2015 / Innleiðing (2 dagar)