Stjórnkerfi fyrir heilsu og öryggi
Occupational Health and Safety
OHSAS 18001 er öflugt stjórnkerfi sem fylgir ítrustu kröfum um heilsu og öryggi starfsmanna. Fyrirtæki sem leggur áherslu á heilsu og öryggi starfsmanna eykur traust þeirra og starfsánægju auk þessa að auka traust viðskiptavina og annara hagsmunaaðila.
Aflaðu þér sérþekkingar á Innri úttektum á stjórnkerfi
fyrir heilsu og öryggi á skipulagðan og skilvirkan hátt
í samræmi við OHSAS 18001
Námskeiðslýsing
Með þátttöku á námskeiði okkar færðu reynslu í skipulagningu, framkvæmd, skýrslugerð og eftirfylgni við innri úttektir á OHSAS 18001:2007. Sérfræðingur okkar mun einnig aðstoða þig við að útfæra Innri úttektir sem hæfa þínu fyrirtæki.
Fyrir hverja er námskeiðið ?
- Stjórnendur heilbrigðis- og öryggismála
- Millistjórnendur sem hafa ábyrgð á heilsu og öryggi
- Stjórnendur og starfsmenn sem bera ábyrgð á úttektum á OHSAS 18001
- Gæða- og umhverfisstjóra sem bera ábyrgð á samþættingu við OHSAS 18001
Markmið námskeiðs
Að þátttakendur öðlist yfirsýn og skilning á kröfum innri úttekta á stjórnkerfi fyrir heilsu og öryggi starfsmanna, vinnuvernd. Þátttakendur eiga þannig að geta :
- Nýtt sérþekkingu sína og hæfni til að skipuleggja og framkvæma innri úttektir skv OHSAS 18001:2007 í samræmi við innri úttektir í ISO 19011
- Haft skilning á því hvernig ferli innri úttekta auðveldar stöðugar umbætur á heilsu og öryggi starfsmanna
- Innleitt aðferðafræði til að hrinda umbótum í framkvæmd
- Byggt upp vitund og skilning innan fyrirtækisins um mikilvægi málefna í heilsu og öryggismálum starfsmanna
Ávinningur fyrir fyrirtækið
- Fagleg nálgun við innri úttektir auðveldar fyrirtækjum að bera kennsl á núverandi og mögulega veikleika í stjórnunarkerfi
- Gerir fyrirtækinu kleift að grípa til aðgerða áður en skaðinn er skeður
Efnisþættir námskeiðs:
- Uppsetning og skilgreiningar á ISO 18001
- Skilyrði fyrir vinnuvernd
- Skipulagning innri úttekta
- Gerð gátlista
- Framkvæmd innri öryggisúttekta
- Niðurstöður og skýrslugerð
- Innleiðing úrbóta
- Eftirfylgni
- Áframhaldandi umbætur
- Verkefni í ISO 18001
- Reynslusögur (Case Studies)
- Umræðuhópar
- Hópavinna
Nánari upplýsingar
OHSAS 18001 / Innri úttekt á stjórnkerfi fyrir heilsu og öryggi
Kennslusalur / 4. hæð / Skipholti 50c
Kennari námskeiðs: Örn Alexandersson frá BSI
Verð: 158.000 kr.
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námsskeiðsgögnum.
Nemendur fá þátttökuskírteini frá BSI að námskeiði loknu.
Öll námskeiðsgögn eru á ensku
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendið tölvupóst á namskeid@bsiaislandi.is