Innri úttektir stjórnkerfa

Ekkert stjórnkerfi skilar tilskildum árangri nema fylgst sé með notkun þess innan fyrirtækis

Þetta eins dags námskeið tekur á því hvernig á að stjórna innri úttektum með árangursríkum hætti. Kenndar eru aðferðir innri úttekta sem samræmast ISO 19011. Einnig er kennt hvernig best er skipuleggja, framkvæma, skrá innri úttektir og hvernig vinna eigi að úrbótum.

Fyrir hverja er námskeiðið?

ISO Bullet  Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnkerfisstöðlum (t.d. ISO 9001) og ábyrgt fyrir innri úttektum

ISO Bullet  Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag við innri úttektir

Ávinningur fyrir fyrirtækið
Starfsmenn læra hvernig þeir geta gert fyrirtækinu kleift að fylgja þeim kröfum sem ISO 19011 setur. Námskeiðið gerir starfsmönnum kleift að bera kennsl á þau frábrigði sem geta haft áhrif á skilvirkni gæðastjórnunarkerfins. Starfsmenn sem framkvæma innri úttektir öðlast sjálfstraust í starfi og reynslu eftir námskeiðið.

Efnisþættir námskeiðs

ISO Bullet  Skipulag innri úttekta og markmiðasetning

ISO Bullet  Framkvæmd innri úttekta

ISO Bullet  Samskipti við starfsmenn við framkvæmd innri úttekta

ISO Bullet  Skýrslugerð, niðurstöður og frábrigði

Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 1 dagur, kennt frá 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á íslensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur BSI á Íslandi

Verð: 89.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.

Þátttakendur fá skírteini frá BSI á Íslandi ehf að námskeiði loknu.


Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á namskeid@bsiaislandi.is.

Innri úttektir (1 dagur)

  • NafnGSM
  • NafnNetfangGSM 
  • Settu stafina í reitinn

(c) BSI 2013