Ekkert stjórnkerfi skilar tilskildum árangri nema fylgst sé með notkun þess innan fyrirtækis
Þetta eins dags námskeið tekur á því hvernig á að stjórna innri úttektum með árangursríkum hætti. Kenndar eru aðferðir innri úttekta sem samræmast ISO 19011. Einnig er kennt hvernig best er skipuleggja, framkvæma, skrá innri úttektir og hvernig vinna eigi að úrbótum.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnkerfisstöðlum (t.d. ISO 9001) og ábyrgt fyrir innri úttektum
Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag við innri úttektir
Ávinningur fyrir fyrirtækið
Starfsmenn læra hvernig þeir geta gert fyrirtækinu kleift að fylgja þeim kröfum sem ISO 19011 setur. Námskeiðið gerir starfsmönnum kleift að bera kennsl á þau frábrigði sem geta haft áhrif á skilvirkni gæðastjórnunarkerfins. Starfsmenn sem framkvæma innri úttektir öðlast sjálfstraust í starfi og reynslu eftir námskeiðið.
Efnisþættir námskeiðs
Skipulag innri úttekta og markmiðasetning
Framkvæmd innri úttekta
Samskipti við starfsmenn við framkvæmd innri úttekta
Skýrslugerð, niðurstöður og frábrigði
Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 1 dagur, kennt frá 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á íslensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur BSI á Íslandi
Verð: 89.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.
Þátttakendur fá skírteini frá BSI á Íslandi ehf að námskeiði loknu.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á namskeid@bsiaislandi.is.