BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Úttektir á leigubifreiðastöðvum

Úttektir á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva

Úttektir á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva

 

Í samræmi við kröfur til rekstraraðila býður BSI á Íslandi upp á árlegar úttektir á rafrænum skrám leigubifreiðastöðva í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022.

Hlutverk úttektaraðila

Úttektaraðili skal framkvæma úttekt á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva með sérstakri áherslu á:

  • Öryggi og gæði gagna.
  • Skráningu, miðlun og varðveislu gagna í rafrænum kerfum.
  • Aðgengi eftirlitsaðila að upplýsingum í rauntíma.
  • Að kerfin uppfylli kröfur um gagnavernd, dulkóðun og aðgangsstýringu.
  • Áreiðanleika rafrænnar skrár um seldar ferðir, þ.m.t. gervihnattaupplýsingar, verðupplýsingar, auðkenni ökutækja og leyfishafa.

Úttektaraðili skal gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila henni til Samgöngustofu.

Beiðni um úttekt á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva

Þetta form er notað til að óska eftir úttekt á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva

Sláðu inn nafn stöðvar
Kennitala stöðvar
Hversu margir starfsmenn eru samþykktir hjá SGS hjá stöðinni? Hvaða stafræna kerfi notar stöðin. Hvaða tími hentar til úttektar ?

Ferlið sjálft er einfalt, allt frá skráningu og úttekt til vottunar.
Trúnaður
Fyllsta trúnaðar er gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið er með hverju sinni. 
Einhverjar spurningar?
Hafir þú einhverjar spurningar þá hikar þú ekki við að hafa samband við okkur í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á info@bsiaislandi.is.

Þjónustuver og netspjall

Þjónustuver og netspjall

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband