ÞJÓNUSTA UM ALLT LAND
BSI á Íslandi er faggild skoðunarstofa sem hefur starfsleyfi frá Samgöngustofu til að framkvæma skoðanir á skipum um allt land. Hjá okkur starfa skoðunarmenn með áratuga reynslu sem taka vel á móti þér og kappkosta að veita faglega þjónustu á sanngjörnu verði.
Fagleg þjónusta á sanngjörnu verði
Skipaskoðunarsvið leggur metnað í að bjóða faglegar og hagkvæmar skoðanir og leggja þannig grunninn að farsælu langtíma sambandi. Hjá okkur starfa 5 skoðunarmenn sem eru boðnir og búnir að aðstoða þig með þína skipaskoðun.
Skilmálar
- Almennt
- Við skoðun skal eigandi eða fulltrúi fyrir hans hönd vera viðstaddur.
- Hægt er að veita undantekningu við bol- og öxulskoðanir.
- Framkvæmd
- Þær aðferðir sem notaðar eru við framkvæmd skoðana er að finna í Skoðunarhandbókum Samgöngustofu.
- Sérhvert mat á ástandi skips, dæmingu og niðurstöðum skoðunar eru í samræmi við skoðunarhandbók og þar með í samræmi við gildandi reglur um viðkomandi skoðunarverk.
- Að lokinni skoðun eru skoðunarskýrslur sendar verkkaupa og skráðar í skipaskrá Samgöngustofu.
- Gjald
- Gjald fer eftir gjaldskrá að hverju sinni fyrir viðkomandi skoðun.
- Með staðfestingu á pöntun samþykkir verkkaupi að greiða gjald sem gildir fyrir viðkomandi skoðun.
Trúnaður
Fyllsta trúnaðar er gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið er með hverju sinni. Skoðunarskýrslur eru sendar verkkaupa og skráðar í skipaskrá Samgöngustofu.
Settu þig í samband við skoðunarmann okkar á þínu svæði og bókaðu tíma sem hentar þér
Það er einfalt að bóka Skipaskoðun hjá BSI á Íslandi
Þú getur fyllt út umsókn hér á heimasíðu okkar, sent okkur tölvupóst á skipaskodun@bsiaislandi.is, haft samband beint við skoðunarmann eða hringt í skrifstofu okkar í síma 414 4444 og pantað tíma sem hentar þér.
Þeim eigendum skipa sem þurfa skoðun utan SV-lands er bent á að þeir geta með samvinnu sín á milli náð kostnaði verulega niður ef skoðanir eru pantaðar fyrir nokkur skip í einu með einhverjum fyrirvara.