Úttektir á leigubifreiðastöðvum
Úttektir á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva
Úttektir á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva
Í samræmi við kröfur til rekstraraðila býður BSI á Íslandi upp á árlegar úttektir á rafrænum skrám leigubifreiðastöðva í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022.
Hlutverk úttektaraðila
Úttektaraðili skal framkvæma úttekt á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva með sérstakri áherslu á:
- Öryggi og gæði gagna.
- Skráningu, miðlun og varðveislu gagna í rafrænum kerfum.
- Aðgengi eftirlitsaðila að upplýsingum í rauntíma.
- Að kerfin uppfylli kröfur um gagnavernd, dulkóðun og aðgangsstýringu.
- Áreiðanleika rafrænnar skrár um seldar ferðir, þ.m.t. gervihnattaupplýsingar, verðupplýsingar, auðkenni ökutækja og leyfishafa.
Úttektaraðili skal gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila henni til Samgöngustofu.
Beiðni um úttekt á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva
Þetta form er notað til að óska eftir úttekt á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva
Ferlið sjálft er einfalt, allt frá skráningu og úttekt til vottunar.
Trúnaður
Fyllsta trúnaðar er gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið er með hverju sinni.
Einhverjar spurningar?
Hafir þú einhverjar spurningar þá hikar þú ekki við að hafa samband við okkur í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á info@bsiaislandi.is.
Þjónustuver og netspjall
Þjónustuver og netspjall
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!
