BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Framtíð fjármálafyrirtækja

Samkvæmt World Economic Forum þá er mikil nýsköpun væntanleg í fjármálaþjónustu eins og reikningsviðskiptum, greiðsluþjónustu, fjármálamörkuðum, fjárfestingastjórnun og tryggingum. Þess auki eru miklar breytingar væntanlegar í tækniþróun, væntingar viðskiptavina munu aukast og lagaumhverfið mun halda áfram að vera síbreytilegt.

Fjármálafyrirtæki á Íslandi

Í skýrslu Seðlabanka Íslands um stefnumarkandi áherslur við eftirlit á fjármálamarkaði á árunum 2022-2024 kemur fram að fjármálamarkaðurinn búi við meiri og hraðari breytingar en áður og að margir þættir valdi því samtímis að hann verði sífellt alþjóðlegri, fjölbreyttari, flóknari og tæknivæddari.

Þessar breytur eru eftirfarandi:

Fjártækni og nýjar lausnir.

Ný viðskiptalíkön.

Flóknari viðskiptasambönd og lengri þjónustukeðjur.

Vinnsla gagna.

Sjálfvirkni og gervigreind.

Breyttar kröfur og hegðun neytenda.

Vaxandi innlend og erlend samkeppni.

Útvistun og skýjalausnir.

Flóknara regluverk og breyttar kröfur og hegðun neytenda.

ISO staðlar fjármálafyrirtækjum

Skammstöfunin ISO stendur fyrir (International Organization for Standardization) sem er sjálfstæð og alþjóðleg stofunun sem þróar reglugerðarstaðla.

Tilgangur staðlanna er að tryggja afkastagetu og gæði og öryggi á kerfum, vörum og þjónustuþáttum.

Hægt er að innleiða ISO gæðastjórnunarstaðla og votta í öllum atvinnugreinum og öllum stærðum fyrirtækja og stofnana.

Þeir gæðastjórnunarstaðlar sem oftast hafa verið innleiddir í fjármálafyrirtækjum eru:

ISO 9001 (Gæðastjórnun)

ISO 27001 (Upplýsingaöryggi)

ISO 31000 (Áhættustjórnun)

Sífellt aukið regluverk er í starfsemi fjármálafyrirtækja í breytilegu hagkerfi þess vegna er nauðsynlegt að nota gæðastjórnunarstaðla utan um kerfi og ferla til að verja fyrirtækið og viðskiptavinina.

Með því að innleiða ISO gæðastjórnunarstaðla er hægt að minnka áhættu, auka afkastagetu og skapa sameigilegan vettvang fyrir fjármálafyrirtæki á alþjóðamarkaði.

Af hverju British Standard Institution ( BSI group)

BSI (British Standards Institution) er stofnað árið 1901 og er leiðandi aðili í sérfræðiþjónustu til stofnana og fyrirtækja um allan heim. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 4600 starfsmenn og veita þjónustu í 192 löndum. 

Þjónustueiningar BSI skiptast í eftirfarandi hluta:  

Staðlagerð 

BSI er leiðandi á heimsvísu í gerð staðla. Það er hægt að nálgast staðla allt frá verndun höfundaréttar til tæknilegrar lýsingar á einstökum kerfum.  

Úttektir og vottanir

Faggildar úttektir á stjórnkerfum. Viðskiptavinir BSI group eru yfir 84.000.  

Vöruprófanir

BSI prófa margar vörur á ýmsum sviðum, t.d í byggingariðnaði, brunavörnum, rafmagns- og lækningatæki gangvart stöðlum (CE merkingar) ásamt því að vera leiðbeinandi við þróun á nýjum vörum.  

BSI er jafnframt tilkynntur aðili fyrir 11 reglugerðir eða tilskipanir Evrópusambandsins. 

Námskeið 

BSI Learning er leiðandi aðili í námskeiðum fyrir stjórnkerfisstaðla, verklag og alþjóðlegar kröfur.

Flest þessara námskeiða eru kennd hérlendis en jafnframt er hægt að sækja sértæk námskeið erlendis á vegum BSI.

Árlega fá um 200.000 aðila þjálfun frá sérfræðingum BSI Group.  Á skrifstofu BSI á Íslandi færðu allar nánari upplýsingar um þjónustu BSI.  

Tengdar þjónustur

Þjónustuver og netspjall

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband