BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

ISO 9001:2015 – Innleiðing
Innleiðing á Gæðastjórnunarkerfi

Frá

12. febrúar, 2024

til

febrúar 13, 2024

Námskeiðslýsing

Þetta ítarlega námskeið hjálpar þátttakendum að fá skilning á öllum þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla fyrir ISO 9001:2015. Farið verður yfir öll helstu grunnatriði og þær aðferðir sem ættu að vera notaðar í upphafi þegar ISO 9001 staðallinn er tekin upp.

Ólík fyrirtæki – ólík stjórnkerfi
Áhersla á að byggja upp stjórnkerfi sem er aðlagað hverju fyrirtæki fyrir sig.
Forysta
Krafa um að æðstu stjórnendur fyrirtækja taki þátt í og beri ábyrgð á stjórnkerfinu og aðlagi gæði með víðtækari stefnu fyrirtækisins.
Áhættustjórnun
Áhættumatsnálgun sem leiðir af sér forvarnir í öllu stjórnkerfinu og hvetur til stöðugra framfara.
Skjölun
Minni áhersla á skjölun. Fyrirtækið ákveður sjálft hvaða skjöl eru mikilvæg og í hvaða formi þau skulu skjöluð.
Samræmi
Samræmi á milli helstu stjórnkerfa með sambærilegum kjarna í uppbyggingu og texta.

Ávinningur námskeiðs

Þetta námskeið tryggir að notaðar séu margreyndar og sannprófaðar aðferðir fyrir alla þá sem innleiða ISO 9001. Að nota ISO 9001 er að jafnaði arðvænleg fjárfesting fyrir fyrirtæki. Ágóði fyrirtækja felst m.a. í auknu trausti meðal starfsmanna, auknum skilningi og aðstoðar fyrirtæki við að komast hjá kostnaðarsömum mistökum.

Efnisþættir námskeiðs

  • Hugmyndafræði og kröfur ISO 9001:2015
  • Uppbygging gæðastjórnunarkerfis
  • Skilgreining ábyrgða fyrir gæðastjórnunarkerfi
  • Skoða núverandi rekstur og innleiðingu nýrra aðferða
  • Framsetning upplýsinga á sem bestan hátt
  • Skipulagning innleiðingarferlisins á áhrifaríkan hátt
  • Undirbúningur fyrir úttektir
  • Gæðastefna og markmið
  • Viðhald og umbætur á gæðastjórnunarkerfinu

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er fyrir starfsmenn, æðstu stjórnendur ofl. skipulagsheilda sem eru að innleiða eða vinna eftir gæðastjórnunarkerfi.
Einnig hentar námskeiðið þeim sem eru að innleiða jafnlaunakerfi.

 

  • Fyrir þá sem vilja sérfræðiþekkingu og skilning á innleiðingarferli ISO 9001:2015.
  • Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnunarkerfisstöðlum.
  • Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag.
  • Stjórnendur fyrirtækja og þá sem starfa samkvæmt kröfum ISO 9001.

Nánari upplýsingar

Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá kl 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi

Verð: 165.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.

Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.

20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.

Þátttakendur fá skírteini frá BSI að námskeiði loknu.

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Show Buttons
Hide Buttons
Hafðu samband