BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

HMS-Skoðun á gæðastjórnunarkerfum

BSI á Íslandi – skoðun gæðastjórnunarkerfa

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur gefið út verklagsreglu sem gildir um allar skoðanir á gæðastjórnunarkerfum hönnuða og hönnunarstjóra, byggingarstjóra og iðnmeistara. Markmið verklagsreglunnar er að tryggja samræmi í framkvæmd skoðana en þær verða framkvæmdar af skoðunarstofu fyrir hönd HMS.

BSI á Íslandi hefur leyfi frá HMS til skoðunar á gæðastjórnunarkerfum skv kröfum byggingarreglugerðar.

Eftir 1. janúar 2015 skulu hönnuðir og hönnunarstjórar, byggingarstjórar og iðnmeistarar hafa innleitt gæðastjórnunarkerfi sem uppfyllir þær kröfur sem fram koma í byggingarreglugerð. Þessir aðilar skulu tilkynna HMS um gæðastjórnunarkerfi sitt til skráningar í gagnasafn HMS sbr.1. mgr. 13. gr., 2. mgr. 24. gr. og 7. mgr. 32. gr laga um mannvirki.

Innan 12 mánaða frá skjalaskoðun skal fara fram skoðun á virkni gæðastjórnunarkerfisins. Standist kerfið skoðunina fer fram fullnaðarskráning þess. – HMS / VLR 9.007

Umsóknarferlið – skoðun og skráning gæðastjórnunarkerfis.

Fyrsta skrefið er að sækja um skráningu gæðastjórnunarkerfis hjá HMS.

Fagaðili sækir um skráningu gæðastjórnunarkerfis hjá HMS þegar hann telur kerfið fullnægja kröfum laga um mannvirki, byggingarreglugerðar og viðeigandi leiðbeiningum HMS um gæðastjórnunarkerfi. Sótt er um skráningu gæðastjórnunarkerfa rafrænt á „Mínum síðum“ á vef HMS.

Ef gæðastjórnunarkerfið er vottað af faggildri vottunarstofu (t.d. ISO 9001 hjá British Standards) þarf ekki að sækja um skjalaskoðun á gæðastjórnunarkerfinu þegar umsókn er tekin til meðferðar hjá HMS.
Í framhaldi af skjalaskoðun, þarf að fara fram
virkniskoðun á gæðakerfinu innan 12 mánaða. Eftir það á 5 ára fresti.

Hér eru nokkrar hjálplegar síður til að aðstoða aðila við innleiðingu og innra eftirlit gæðastjórnunarkerfa ásamt umfangi og ábyrgð.

Hönnuðir og hönnunarstjórar

Byggingarstjórar

Iðnmeistarar

Einnig er gagnlegt að fara yfir skoðunarhandbækur til að sjá lýsingu og tilgang gæðastjórnunarkerfis.

Skoðunarhandbækur

Umsókn um skoðun finnur þú hér:

Kröfur um gæðastjórnunarkerfi ná yfir öll byggingarleyfisskyld verk hönnuða, hönnunarstjóra, byggingarstjóra og iðnmeistara.
Ferlið sjálft er einfalt, allt frá skráningu og skoðun til samþykktar skv. kröfum/skilyrðum byggingarreglugerðar.
Trúnaður
Fyllsta trúnaðar er gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið er með hverju sinni. Skoðunarskýrslur eru sendar verkkaupa og HMS.
Einhverjar spurningar?
Hafir þú einhverjar spurningar þá hikar þú ekki við að hafa samband við okkur í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á info@bsiaislandi.is.

Þjónustuver og netspjall

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband