Framtíð iðnaðar
Miklar breytingar eru að eiga sér stað í iðnaði og framleiðslu sökum mikilla breytinga í tækni, breyttri eftirspurn og aðfangakeðju. Nýjir markaðir að myndast samsíða nýrri tækni, tækifærum og þekkingu. Einnig virðast mörkin á milli framleiðanda og seljanda að verða óljósari. Aðfangakeðjur eru að breytast þannig að framleitt er meira eftir þörfum fremur en fyrir geymslu.
Virðismat iðnaðarfyrirtækja í hefðbundum skilningi er að breytast. Virðið er ekki lengur í vörunni sjálfri heldur en í þjónustustiginu sem fylgir henni. Af því leiðir að breytingar eru að eiga sér stað á misjöfnum hraða og því nauðsynlegt að fylgjast með reglusetningu, flækjustigi í framleiðsluferlinu sem og flutning gagna á rafrænt form. Iðnaðar- og framleiðslufyrirtæki þurfa að vaxa með öðrum vaxtarðferðum en áður. Það eykur þörf á gæðastjórnunarkerfum og utanumhald til þess að halda utan um allar ferlabreytingar.
Iðnaður á Íslandi
Framleiðsluiðnaður, hugverkaiðnaður og byggingariðnaður eru fjölþættar greinar og snerta alla þætti í íslensku efnahagslífi og er hluti iðnaðar 26% landsframleiðslunnar. Þessi fyrirtæki starfa í iðnaði bæði í rótgrónum og nýjum iðngreinum um land allt. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum Iðnaðarins hefur hlutur greinarinnar í verðmætasköpun verið að aukast síðustu ár. Hlutdeild iðnaðar í heildarútflutningsgeirum var orðið 44% á árinu 2022.
ISO staðlar og iðnaður
Skammstöfunin ISO stendur fyrir (International Organization for Standardization) sem er sjálfstæð og alþjóðleg stofunun sem þróar reglugerðarstaðla. Tilgangur staðlanna er að tryggja afkastagetu, gæði og öryggi á kerfum, vörum og þjónustuþáttum.
Hægt er að innleiða ISO gæðastjórnunarstaðla og votta í öllum atvinnugreinum og öllum stærðum fyrirtækja og stofnana.
Þeir gæðastjórnunarstaðlar sem hafa oftast verið innleiddir í iðnaðarfyrirtækjum eru:
ISO 9001 (Gæðastjórnun)
ISO 45001 (heilsa og öryggi á vinnustað)
ISO 14001 (Umhverfisstjórnun)
Innleiðing á viðeigandi ISO stöðlum eykur gæði, sjálfbærni og seiglu í aðfangakeðju.
Dæmi um rekstrarþætti sem styrkjast eru;
Stafræn umbreyting.
Sjálfbærni.
Öryggismál.
Gæðamál.
Aðfangakeðja.
Aðgangur að mörkuðum.
Af hverju British Standard Institution (BSI group)
BSI (British Standards Institution) er stofnað árið 1901 og er leiðandi aðili í sérfræðiþjónustu til stofnana og fyrirtækja um allan heim. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 4600 starfsmenn og veita þjónustu í 192 löndum.
Þjónustueiningar BSI skiptast í eftirfarandi hluta:
Staðlagerð
BSI er leiðandi á heimsvísu í gerð staðla. Það er hægt að nálgast staðla allt frá verndun höfundaréttar til tæknilegrar lýsingar á einstökum kerfum.
Faggildar úttektir á stjórnkerfum. Viðskiptavinir BSI group eru yfir 84.000.
BSI prófa margar vörur á ýmsum sviðum, t.d í byggingariðnaði, brunavörnum, rafmagns- og lækningatæki gangvart stöðlum (CE merkingar) ásamt því að vera leiðbeinandi við þróun á nýjum vörum.
BSI er jafnframt tilkynntur aðili fyrir 11 reglugerðir eða tilskipanir Evrópusambandsins.
BSI Learning er leiðandi aðili í námskeiðum fyrir stjórnkerfisstaðla, verklag og alþjóðlegar kröfur.
Flest þessara námskeiða eru kennd hérlendis en jafnframt er hægt að sækja sértæk námskeið erlendis á vegum BSI.
Árlega fá um 200.000 aðila þjálfun frá sérfræðingum BSI Group. Á skrifstofu BSI á Íslandi færðu allar nánari upplýsingar um þjónustu BSI.
Tengdar þjónustur
ISO vottanir
stjórnunarkerfa
ÍST 85
Jafnlaunavottun
Námskeið
CE -merkingar
Samræmismat og löggilding voga
Rafmagnsskoðun
Öryggisstjórnkerfi rafverktaka
HMS skoðun á gæðastjórnunar-kerfum
Lyftuskoðun
Kvörðunarþjónusta
Eurogarant
Þjónustuver og netspjall
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!