BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

ISO 9001-QMS Gæðastjórnunarkerfi

ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi

ISO 9001 er vinsælasti staðallinn fyrir rekstur fyrirtækja og stofnanna. Staðallinn setur fram kröfur á gæðastjórnunarkerfi og er öflugt verkfæri til að ná enn betri rekstrarlegum árangri á hagkvæman og skilvirkan hátt. Notast er við kerfisbundna nálgun á stöðugum umbótum til að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina.

Gæðastjórnun er aðferðafræði við stjórnun fyrirtækja sem hefur þróast frá því að vera einföld stýring á framleiðslu yfir í að taka á öllum hliðum rekstrar óháð eðli fyrirtækisins. Hugmyndafræðin byggir á því að hafa þarfir hagsmunaaðila ávallt að leiðarljósi og reyna sífellt að gera betur, breyta og bæta.

Að innleiða gæðastjórnun er stefnumótandi ákvörðun sem krefst stuðnings allra stjórnenda. Gæðastjórnun má innleiða í hvaða fyrirtæki eða stofnun sem er með því að aðlaga hugmyndafræðina að stærð og starfsemi fyrirtækis. Leiðarljósið er ávallt það sama, að bæta frammistöðuna og að auðvelda fyrirtækinu að ná markmiðum sínum.

Greiðsluskilmálar námskeiða

Við skráningu á námskeið samþykkir umsækjandi greiðslu á námskeiðsgjaldi.

Námskeiðsgjöld eru að jafnaði innheimt viku fyrir námskeið. Greiðsluseðill birtist í heimabanka/fyrirtækjabanka.

Afskráning á námskeið þarf að berast með lágmarki viku fyrirvara annars eru námskeiðsgjöld innheimt.

BSI á Íslandi áskilur sér rétt til þess að fella niður eða fresta námskeiðum ef ekki næst nægur þátttakendafjöldi.

Ef þú hefur einhverjar spurningar vegna greiðsluskilmála eða námskeiða almennt getur þú sent okkur póst á namskeid@bsiaislandi.is eða haft samband við skrifstofu okkar í síma 414 4444.

Filter by:
ISO 9001:2026 – Gæðastjórnunarkerfi – Innleiðing

ISO 9001:2026 – Gæðastjórnunarkerfi – Innleiðing

2. desember, 2026 - desember 3, 2026

Vinsælasti staðallinn í rekstri fyrirtækja og stofnanna um allan heim og hjálpar þeim að ná enn betri árangri á hagkvæman og skilvirkan hátt. Með þátttöku í námskeiðinu ættir þú að verða lykilstarfsmaður í því að tryggja að þitt fyrirtæki sé bæði samstillt og samhæft samkvæmt ISO 9001.
ISO 9001:2026 – Gæðastjórnunarkerfi – Kröfur og uppfærsla- Nýtt

ISO 9001:2026 – Gæðastjórnunarkerfi – Kröfur og uppfærsla- Nýtt

14. desember, 2026 - desember 14, 2026

Eins dags uppfærslunámskeið sem er hannað fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa vottun samkvæmt ISO 9001:2015. Námskeiðið veitir skýra innsýn í nýjar kröfur og skýringar staðalsins með áherslu á undirbúning fyrir innleiðingu. Þátttakendur læra að túlka breytingarnar, uppfæra gæðastjórnunarkerfið sitt og undirbúa skipulagið fyrir hnökralausa uppfærslu yfir í nýju útgáfuna.
 

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband