Frá
til
Námskeiðslýsing
Þetta ítarlega námskeið hjálpar þátttakendum að fá skilning á öllum þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla fyrir ISO 9001:2015. Farið verður yfir öll helstu grunnatriði og þær aðferðir sem ættu að vera notaðar í upphafi þegar ISO 9001 staðallinn er tekin upp.
Ólík fyrirtæki/stofnanir – ólík stjórnkerfi:
Áhersla á að byggja upp stjórnkerfi sem er aðlagað að hverju fyrirtæki/stofnun fyrir sig.
Forysta:
Krafa um að æðstu stjórnendur fyrirtækja taki þátt í og beri ábyrgð á stjórnkerfinu og aðlagi gæði með víðtækari stefnu fyrirtækisins.
Áhættustjórnun:
Áhættumatsnálgun sem leiðir af sér forvarnir í öllu stjórnkerfinu og hvetur til stöðugra framfara.
Skjölun:
Minni áhersla á skjölun. Fyrirtækið ákveður sjálft hvaða skjöl eru mikilvæg og í hvaða formi þau skulu skjöluð.
Samræmi:
Samræmi á milli helstu stjórnkerfa með sambærilegum kjarna í uppbyggingu og texta.
Ávinningur námskeiðs
Þetta námskeið tryggir að notaðar séu margreyndar og sannprófaðar aðferðir fyrir alla þá sem innleiða ISO 9001. Að nota ISO 9001 er að jafnaði arðvænleg fjárfesting fyrir fyrirtæki. Ágóði fyrirtækja felst m.a. í auknu trausti meðal starfsmanna, auknum skilningi og aðstoðar fyrirtæki við að komast hjá kostnaðarsömum mistökum.
Efnisþættir námskeiðs
- Hugmyndafræði og kröfur ISO 9001:2015
- Uppbygging gæðastjórnunarkerfis
- Skilgreining ábyrgða fyrir gæðastjórnunarkerfi
- Skoða núverandi rekstur og innleiðingu nýrra aðferða
- Góð framsetning upplýsinga
- Skipulagning innleiðingaferlisins með áhrifaríkum hætti
- Undirbúningur fyrir úttektir
- Gæðastefna og markmið
- Viðhald og umbætur á gæðastjórnunarkerfinu
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir starfsmenn, stjórnendur og fleiri innan skipulagsheilda sem eru að innleiða eða vinna eftir gæðastjórnunarkerfi.
- Fyrir þá sem vilja bæta við sig sérfræðiþekkingu og skilning á innleiðingarferli ISO 9001:2015
- Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnunarkerfisstöðlum
- Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag
- Stjórnendur fyrirtækja og þá sem starfa samkvæmt kröfum ISO 9001
Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá kl 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12 manns
Verð: 176.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.
Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.
20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.
Þátttakendur fá skírteini frá BSI að námskeiði loknu.
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!