Frá
til
Námskeiðslýsing
Innri úttektir samkvæmt ÍST 85:2012 / ISO 19011
Krafa er um að fylgst sé með hvort jafnlaunakerfið skili tilætluðum árangri og því mikilvægt að ná góðum tökum á aðferðum við innri úttektir.
Þetta eins dags námskeið fjallar um hvernig eigi að stjórna innri úttektum með árangursríkum hætti. Kenndar eru aðferðir innri úttekta sem samræmast ÍST 85:2012 / ISO 19011. Einnig er kennt hvernig best er að skipuleggja, framkvæma, skrá innri úttektir og hvernig vinna eigi að úrbótum.

Ávinningur námskeiðs
- Starfsmenn læra hvernig þeir geta gert fyrirtækinu kleift að fylgja þeim kröfum sem ÍST 85:2012 setur.
- Gerir starfsmönnum kleift að bera kennsl á frábrigði, það sem betur megi fara og getur haft áhrif á skilvirkni jafnlaunakerfisins.
- Starfsmenn sem framkvæma innri úttektir á jafnlaunakerfi öðlast sjálfstraust og reynslu í starfi.
Efnisþættir námskeiðs
- Yfirlit um ÍST 85:2012
- Skipulag innri úttekta og markmiðasetning
- Framkvæmd innri úttekta
- Samskipti við starfsmenn við framkvæmd innri úttekta
- Skýrslugerð, niðurstöður, frábrigði og úrbætur
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir starfsmenn (mannauðsstjóra, launafulltrúa, æðstu stjórnendur ofl.) skipulagsheilda sem eru með vottað jafnlaunakerfi og eru að taka að sér ábyrgð í jafnlaunakerfinu.
Einnig hentar námskeiðið þeim sem eru að innleiða jafnlaunakerfi.
- Starfsfólk sem er ábyrgt fyrir innri úttektum á jafnlaunakerfi og hefur grunnþekkingu á ÍST 85:2012.
- Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag við úttektir á jafnlaunakerfi.
Nánari upplýsingar
- Tímasetning: (1 dagur) 09:00 – 16:00
- Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi
- Verð: 89.000 kr
- Innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.
Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.
20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.
Þátttakendur fá skírteini frá BSI á Íslandi að námskeiði loknu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á namskeid@bsiaislandi.is.
Aðgangur að staðlinum ÍST 85:2012 Jafnlaunakerfi
Kröfur og leiðbeiningar
Lesaðgangur að staðlinum ÍST 85 er opinn öllum á Íslandi með ákveðnum skilmálum samkvæmt samningi milli Staðlaráðs Íslands og velferðarráðuneytis.
Staðallinn er aðgengilegur hér, án endurgjalds.
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!