BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Hvað gerist ef varan er ekki CE-merkt?

Varan þarf að vera CE merkt svo að hægt sé að markaðssetja hana og selja innan evrópska efnahagssvæðisins. Auk þess er sá aðili sem skrifar undir yfirlýsingu fyrirtækis fyrir tilgreinda vöru, ábyrgur fyrir því að varan sé í samræmi við skilgreint nothæfi.

Hvernig fær vara CE merkingu ?

Áður en að CE merkingu kemur þarf að greina hvaða staðlar eiga við þá vöru sem framleidd er. Vöruflokkar sem falla m.a. undir CPR eru t.d. :

Einangrun | Eldvarnar/reyk- gluggar og hurðir | Gluggar og útihurðirInnihurðir | Járnvara | Límtré | Plaströr | Sement

Steypueiningar | Timbureiningar | Tréburðarvirki

Einfalt ferli við CE merkingar hjá BSI
Að uppfylla kröfur getur verið flókið ferli og virðist oft erfitt í framkvæmd. Kröfur CE merkingar eru misjafnar á milli staðla, sérfræðingar okkar þekkja þessar kröfur og geta hjálpað þér í gegnum ferlið, skref fyrir skref. Allt frá því að greina viðeigandi staðla til þess að skila inn réttri umsókn um CE merkingu fyrir þína vöru.

 

Hverjir falla undir reglugerðina ?

Til þess að falla undir reglugerðina (CPR) þarf varan að vera í samræmi við tilætlaða notkun samkvæmt samhæfðum evrópskum stöðlum (EN) þar sem sagt er til um hvaða aðferðum framleiðandi skal beita til að meta nothæfi byggingarvöru.

Ef fyrirtæki framleiða eða flytja inn vörur sem falla undir reglugerðina er það skylda að setja fram yfirlýsingu til hvaða nota varan er ætluð og felst í henni greining á því hvaða mikilvægu eiginleika varan hefur og þannig hvaða eiginleikar hennar tengjast grunnkröfunum fyrir mannvirki. Með yfirlýsingu ábyrgist framleiðandinn samræmi byggingarvörunnar við tilgreint nothæfi og í mörgum tilfellum er gerð krafa um staðfestingu óháðs aðila (tilkynntur aðili) á nothæfi byggingarvörunnar.

Tilkynntur aðili (Notified Body)
Aðalhlutverk tilkynntra aðila við CE merkingar er að veita þjónustu við framkvæmd samræmismats. Aðildarríkjum ber að tilkynna framkvæmdastjórninni og öðrum aðildarríkjum um aðila sem hafa heimild til að framkvæma samræmismat. Þessum aðilum er heimilt að starfa á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og gilda niðurstöður þeirra óháð landamærum.

 

Further information

More information can be obtained from our office on phone or send us a mail.

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband