Löggilding mælitækja
BSI á Íslandi löggildir vogir, raforkumæla og vatns- og varmaorkumæla

Með því að löggilda mælitæki í rekstri er verið að vernda neytendur og framleiðendur með því að tryggja að vogir sýni rétt og skapa með því traust í viðskiptum. Samkvæmt lögum þarf að löggilda vogir, raforkumæla og vatns- og varmaorkumæla.
Til þess að sjá hvort vog sé löggilt er hægt að athuga löggildingamiðann á þeim. Miðinn er gataður í gegnum ártal og númer sem táknar mánuðinn til að sýna lok löggildingatímabils. Það þýðir að göt í gegnum 8 og 2024 þýða að tímabilið rennur út í lok ágúst 2024. Ekki eru öll mælitæki merkt með löggildingarmiða og fer það eftir aðstæðum og gerð mælitækjahverju sinni.
Hvaða mælitæki eru löggildingaskyld?
- Vogir í afgreiðsluborðum
- Sjálfsafgreiðsluvogir
- Fiskvinnsluvogir
- Kjötvinnsluvogir
- Hafnarvogir
- Raforkumælar
- Vatns- og varmaorkumælar

Til þess að sjá hvort mælitæki sé löggilt er hægt að athuga löggildingamiðann á þeim. Miðinn er gataður í gegnum ártal og númer sem táknar mánuðinn til að sýna lok löggildingatímabils. Það þýðir að göt í gegnum 8 og 2024 þýða að tímabilið rennur út í lok ágúst 2024.
Hvaða vogir eru löggildingaskyldar?
- Vogir í afgreiðsluborðum
- Sjálfsafgreiðsluvogir
- Fiskvinnsluvogir
- Kjötvinnsluvogir
- Hafnarvogir

BSI á Íslandi hefur hlotið starfsleyfi frá HMS til að framkvæma prófanir og löggildingar á raforkumælum samkvæmt reglugerð 1061/2008 og prófanir og löggildingar á vatnsmælum samkvæmt reglugerð nr. 1062/2008.
Samkvæmt reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með vatsnmælum nr. 1062/2008 og reglugerð um mælifræðilegt eftir með varmaorkumælum 561/2012 þurfa vatnsmælar og varmaorkumælar sem eru sölumælar í drefiveti til almmennra notenda að uppfylla kröfur um mælifræðilegt eftirlit.
BSI á Íslandi framkvæmit einnig prófanir á mælum sbr. umsókn á kvörðunarþjónustu BSI á Íslandi.
Hvaða mælar eru löggildingaskyldir?
- Raforkumælar
- Vatns- og varmaorkumælar
Samræmismat – Nýjar vogir
Í samstarfi við NMi CERTIN, bjóðum við jafnframt upp á samræmismat fyrir allar nýjar vogir.NMi CERTIN er tilnefndur aðili (Notified Body) og Evrópusambandið hefur úthlutað þeim númerinu 0122.Samræmismat felst í ítarlegri prófun á vog sem aðeins tilnefndir aðilar mega framkvæma.
Vogir sem standast samræmismat uppfylla kröfur og mega notast í starfsemi þar sem er gerð krafa um löggilt tæki.Með samstarfi NMi CERTIN getum við hjálpað framleiðendum að markaðssetja vogir í Evrópu með því að fá gerðarviðurkenningu fyrir vogir.
Umsókn:
Trúnaður
Fyllsta trúnaðar er gætt að hálfu BSI á Íslandi um þau gögn sem unnið er með hverju sinni.
Einhverjar spurningar?
Hafir þú einhverjar spurningar þá hikar þú ekki við að hafa samband við okkur í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á info@bsiaislandi.is.
Starfsleyfi
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur veitt BSI á Íslandi ehf. bráðabirgðaumboð til að sinna löggildingu á ósjálfvirkum vogum með 3.000 kg hámarksvigtunargetu þar til faggilding liggur fyrir.
Einnig hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitt BSI á Íslandi ehf. heimild á grunni fyrirliggjandi gagna til bráðabirgar að sinna löggildingu á vatns- og varmaorkumælum skv. reglugerð nr. 1062/2008 og 561/2012 og löggildingum á mælikerfum f yrir eldsneytisskammtarar, tankbifreiðar og mjólk skv. reglugerð nr. 1062/2008. Bráðabirgðarumboðið gildir þar til BSI á Íslandi ehf. hefur hlotið faggildingu.

Þjónustuver og netspjall
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!