BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

ISO 19011 – Innri úttektir stjórnunarkerfa
Innri úttektir stjórnunarkerfa

Frá

2. júní, 2025

til

júní 2, 2025

Námskeiðslýsing

Ekkert stjórnkerfi skilar tilskildum árangri nema fylgst sé með notkun þess innan fyrirtækisins

Þetta eins dags námskeið fjallar um hvernig eigi að stjórna innri úttektum með árangursríkum hætti. Kenndar eru aðferðir innri úttekta sem samræmast ISO 19011. Einnig er kennt hvernig best er skipuleggja, framkvæma, skrá innri úttektir og hvernig vinna eigi að úrbótum.

Ávinningur námskeiðs

Starfsmenn læra hvernig eigi að fylgja þeim kröfum sem ISO 19011 setur. Námskeiðið gerir starfsmönnum kleift að bera kennsl á þau frábrigði sem geta haft áhrif á skilvirkni gæðastjórnunarkerfisins. Starfsmenn sem framkvæma innri úttektir öðlast sjálfstraust í starfi og reynslu eftir námskeiðið.

Efnisþættir námskeiðs

  • Skipulag innri úttekta og markmiðasetning
  • Framkvæmd innri úttekta
  • Samskipti við starfsmenn við framkvæmd innri úttekta
  • Skýrslugerð, niðurstöður og frábrigði

Fyrir hverja er námskeiðið?

  • Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnkerfisstöðlum (t.d. ISO 9001) og ábyrgt fyrir innri úttektum
  • Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag við innri úttektir

Nánari upplýsingar

Lengd námskeiðs: 1 dagur, kennt frá 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á íslensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur BSI á Íslandi

Verð: 94.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.

Þátttakendur fá skírteini frá BSI á Íslandi ehf að námskeiði loknu.


Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á namskeid@bsiaislandi.is.

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband