BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Störf

BSI á Íslandi, faggild skoðunarstofa

Skoðunarmaður á rafmagnssviði

Skoðunarmaður á rafmagnssviði

BSI á Íslandi óskar eftir því að ráða agaðan og metnaðarfullan einstakling í starf skoðunarmanns á rafmagnssviði. Hjá okkur er gott vinnumhverfi og starfsfólkið býr yfir ólíkri þekkingu, reynslu og hæfileikum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að skoða virki með málspennu yfir 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu
  • Að skoða virki með málspennu til/með 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu
  • Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafveitna og framkvæmd öryggisstjórnunar
  • Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka og framkvæmd öryggisstjórnunar
  • Skoðun á aðstöðu og búnaði rafverktaka
  • Að skoða rafföng á markaði
  • Prófanir á tæknibúnaði
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
  • hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
  • hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík (áður Tækniháskóli Íslands og Tækniskóli Íslands) eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
  • hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi í rafvirkjun (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla eða hafa jafngilda menntun að mati mennta¬mála-ráðuneytisins og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja

 

  • Öguð vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskipum
  • Reynsla af skoðunarstörfum kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elías M. Erlendsson í síma 414-4444 eða í gegnum netfangið radningar@bsiaislandi.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí næstkomandi. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi ferilskrá ásamt kynningarbréfi. 

Almenn umsókn

Almenn umsókn

Við hjá BSI á Íslandi viljum ráða til okkar hæft starfsfólk sem sýnir frumkvæði, metnað og er sjálfstætt og faglegt í vinnubrögðum. Við ráðum reglulega til okkar starfsfólk til sérstakra verkefna og til lengri tíma.

Hér er hægt að sækja um starf hjá BSI á Íslandi, laus störf eru auglýst sérstaklega.

Með því að skila inn umsókn heimilar umsækjandi BSI á Íslandi að skrá upplýsingar í gagnagrunn og leita staðfestingar á sannleiksgildi þeirra. Gildistími umsóknar er 6 mánuðir, þeim er síðan eytt nema þú hafir samband við okkur og látir vita hvort framlengja eigi gildistíma umsóknarinnar. Allar umsóknir eru geymdar sem trúnaðarupplýsingar á meðan þær eru í vörslu okkar. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðið hefur verið í starfið. Öðrum almennum umsóknum er svarað eftir því sem við á.

Smelltu á auglýst starf eða sendu okkur almenna starfsumsókn.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, hafðu þá samband við skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendu póst á radningar@bsiaislandi.is.

Við þökkum sýndan áhuga á að starfa með okkur.

Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega. Við skoðum allar umsóknir og verðum í sambandi við þá umsækjendur sem koma til greina ef starf losnar sem gæti hentað þeim og umsækjanda boðið að koma og kynna sig í viðtali.

Almenn umsókn sendist á radningar@bsiaislandi.is

radningar@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband