BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Árleg aðalskoðun leiksvæða

Öryggi leiksvæða og eftirlit með þeim

Í hverju felst aðalskoðun leiksvæða?

Ef þú ert rekstraraðili leiksvæða ber þér að sjá til þess að skipulögð leiksvæði séu skoðuð árlega samkvæmt kröfum um aðalskoðanir leiksvæða.

Aðalskoðun leiksvæða er ástandsskoðun í samræmi við reglugerð þar sem gerð er heildarúttekt á öryggi leikvallatækja, yfirborðsefna, undirstöðu þess og umhverfis á leiksvæðinu öllu.

Reglugerð 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim gildir fyrir öll leiksvæði innan dyra sem utan, skipulögð fyrir leik barna svo sem leikskólalóðir, grunnskólalóðir, gæsluvelli, opin leiksvæði, lóðir fjölbýlishúsa og svæði þar sem börn eiga greiðan aðgang að.

Markmið aðalskoðunar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt.

[/et_pb_column]

BSI á Íslandi hefur framkvæmt Aðalskoðun leiksvæða í samræmi við reglugerð 1025/2022 frá árinu 2006 og býður nú uppá framkvæmd HIC-mælinga á undirlagi t.d. þá þeim svæðum sem börn eru við leik.

Með framkvæmd slíkra mælinga er hægt að tryggja að rekstaraðilar leiksvæða uppfylli leiðbeinandi kröfur um undirlag með tilliti til falldempunar.

Með þeirri aðferð er hægt að meta hvaða undirlag telst best til að koma í veg fyrir alvarleg höfuðhögg þegar börn detta við leik.

HIC-mælingar nýtast því vel þegar valið er undirlag við leiktæki til að mynda rólur, kastala eða rennibrautir sem og til að meta hvort að endurnýja þurfi undirlag á álagsflötum.

HIC-mælingar

BSI á Íslandi býður einnig upp á rekstrarskoðanir sem lúta að virkni og stöðugleika leikvallatækja, skoðun á öryggisundirlagi og felast í verklegri yfirferð til að meta viðhaldsþörf. Rekstarskoðun er ítarlegri en reglubundin yfirlitsskoðun skv. Reglugerð 1025/2022.

Rekstrarskoðun

Árleg aðalskoðun leiksvæða

Hægt er að sækja um aðalskoðun leiksvæða með því að fylla út umsóknina hér að neðan, hafa samband við skrifstofu okkar í síma  414 4444 eða senda okkur póst á info@bsiaislandi.is.

Skoðanir á leiksvæðum eru framkvæmdar í samræmi við skilmála BSI á Íslandi.

Þjónustuver og netspjall

Þjónustuver og netspjall

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband