Frá
til
Námskeiðslýsing
Eins dags námskeið sem fer ítarlega yfir nýjustu uppfæslu á ISO 9001:2026. Þetta eins dags yfirfærslunámskeið er sérstaklega hannað fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þegar eru með vottun samkvæmt ISO 9001:2015.
Ávinningur námskeiðs
Námskeiðið veitir skýra innsýn í nýjar kröfur og skýringar staðalsins, áhrif þeirra á innleiðingu og leiðbeiningar um hvernig breytingarnar hafa áhrif á úttektir.
Þetta námskeið mun hjálpa þér að:
- Skilja þær breytingar sem ISO 9001:2026 gerir á ISO 9001:2015.
- Skilja nýjar og viðbótar kröfur sem settar eru fram í ISO 9001:2026.
- Undirbúa innleiðingu nýrra áherslusviða í núverandi gæðastjórnunarkerfi sem byggir á ISO 9001.
- Skipuleggja umbreytingarverkefnið og greina þær aðgerðir sem þarf að ráðast í til að uppfylla nýju kröfurnar.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað úttektaraðilum, eigendum stjórnunarkerfa og öllum sem þurfa að skilja og innleiða breytingarnar í ISO 9001:2026.
- Gæðastjórar sem bera ábyrgð á yfirfærslu gæðastjórnunarkerfis (QMS) fyrirtækis síns yfir í nýjan staðal.
- Innri úttektaraðilar sem þurfa að uppfæra úttektaráætlanir sínar og gátlista.
- Stjórnendur og teymismeðlimir sem bera ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi(QMS).
- Úttektaraðilar sem framkvæma úttektir á gæðastjórnunarkerfis samkvæmt kröfum ISO 9001.
- Einstaklingar sem munu ráðleggja æðstu stjórnendum um yfirfærslu gæðastjórnunarkerfis sem byggir á ISO 9001:2015 yfir í nýju útgáfuna innan fyrirtækis eða stofnunar.
Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 1 dagur, kennt frá 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Ísland
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12 manns
Verð: 129.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.
20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendir okkur póst á info@bsiaislandi.is.
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!
