BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

ÍST 85:2012 – Rekstur og viðhald
Rekstur og viðhald jafnlaunakerfis

Frá

19. desember, 2023

til

desember 19, 2023

Námskeiðslýsing

 

Námskeiðið er fyrir starfsmenn (mannauðsstjóra, launafulltrúa, æðstu stjórnendur ofl.) skipulagsheilda sem eru með vottað jafnlaunakerfi og bera ábyrgð á rekstri  jafnlaunakerfisins. 

Ávinningur námskeiðs

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki umgjörð við rekstur jafnlaunakerfa í samræmi við PDCA ferlið og ávinninginn af því að reka virkt  jafnlaunakerfi. Öðlist þannig hæfni til að gera áætlun fyrir rekstur jafnlaunakerfis og tryggi að rekstur þess uppfylli kröfur ÍST 85:2012

Fyrir hverja er námskeiðið?

 

Námskeiðið er fyrir starfsmenn (mannauðsstjóra, launafulltrúa, æðstu stjórnendur ofl.) skipulagsheilda sem eru með vottað jafnlaunakerfi og bera ábyrgð á jafnlaunakerfinu.
Einnig hentar námskeiðið þeim sem eru að innleiða jafnlaunakerfi.

Forkröfur: Þekking á jafnlaunastaðli eða hafa lokið grunnnámskeiði í kröfum jafnlaunakerfis ÍST 85:2012
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að hafa öðlast aukna færni í rekstri jafnlaunakerfis samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012, geta gert áætlanir um rekstur þess svo það uppfylli staðalinn. 

Nánari upplýsingar

Lengd námskeiðs: 1 dagur, kennt frá 09:00 – 16:00
Námskeiðsgögn eru á íslensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi

Verð: 89.000 kr
– innifalið: kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.

Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.
20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.

Aðgangur að staðlinum ÍST 85:2012 Jafnlaunakerfi
Kröfur og leiðbeiningar

Lesaðgangur að staðlinum ÍST 85 er opinn öllum á Íslandi með ákveðnum skilmálum samkvæmt samningi milli Staðlaráðs Íslands og velferðarráðuneytis.
Staðallinn er aðgengilegur hér, án endurgjalds.

 

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Show Buttons
Hide Buttons
Hafðu samband