BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Gervigreindin þróast hraðar en hægt er að halda í við og hún er notuð í sífellt fleiri verkefnum. En hvernig er hægt að nota gervigreind án þess að missa stjórn áhættunni sem henni fylgir?

 ISO 42001: 2023 er alþjóðlegur staðall fyrir stjórnunarkerfi gervigreindar (Artificial Intelligence Management System – AIMS)

Þessi staðall setur fram kröfur fyrir fyrirtæki sem vilja koma á, innleiða, viðhalda og bæta stjórnun á gervigreind óháð atvinnugrein og stærð fyrirtækis.

ISO 42001:2023 er ekki tæknilegur staðall hefur veitir stjórnunarramma til að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hvar erum við að nota gervigreind?
  • Hvaða áhættu skapar notkun hennar?
  • Hver ber ábyrgð á þeirri áhættu?
  • Hvaða gögn eru notuð?
  • Hvernig fylgjumst við með frammistöðu gervigreindarkerfa?
  • Hvernig tryggjum við gagnsæi og ábyrgð?
  • Hvað gerist ef gervigreindarkerfi gefur rangar eða skaðlegar niðurstöður?
  • Hvernig tryggjum við stöðugar umbætur á stjórnun gervigreindar?

Starfsfólk fyrirtækja byrja að nota gervigreindartól til að auka framleiðni en síðan er gervigreind notuð í almennri ákvarðanatöku:

Starfsmannagögn – gervigreind- greining- tillaga – ákvörðun stjórnanda

Viðskiptavinagögn- gervigreind-sjálfvirk ákvörðun- viðskiptavinur

Þegar gervigreindin er notuð í ákvarðanatöku með auknum mæli þarf að vera ljóst hver áhættan er og hvernig er hægt að stjórna þeirri áhættu.

 

Hafðu samband