Innri úttekt er miklu meira en undirbúningur fyrir vottunarúttekt.
Tilgangurinn er að kanna hvort að gæðakerfið sé virkt, í samræmi við kröfur og hvort að fyrirtækið sjálft sé að skila þeim árangri sem stefnt er að.
Í stuttu máli má segja að innri úttekt sé framkvæmd með það markmið að starfsmenn læri og geri umbætur. Í flestum tilfellum framkvæma starfsmenn úttektina en einnig er gott að fá óháðan aðila til slíkra verkefna. Stjórnendur fá síðan niðurstöður úttektarinnar.
Í vottunarúttekt er það óháður vottunaraðili sem framkvæmir úttektina með það að markmiði að meta hvort að kröfur staðalsins séu uppfylltar. Niðurstöðurnar gefa grundvöll fyrir vottun eða viðhaldi vottunar.
Þó að góðir verkferlar séu til á pappírum getur innri úttekt verið mjög gagnleg.
Í ljós getur komið að starfsfólkið þekki ekki verklagið eða mikilvægar upplýsingar skili sér ekki á rétta staði innan fyrirtækisins né til stjórnenda.
Niðurstöður vottunarúttektar segir okkur hvort að fyrirtækið/stofnunin uppfylli kröfur staðalsins á meðan innri úttektin hjálpar við að sjá hvort að gæðastjórnunarkerfið virki í raun og hvar sé hægt að bæta reksturinn.
Af hverju óháður aðili?
Mikill ávinningur er fyrir fyrirtæki að fá óháðan og vel þjálfaðan aðila til að framkvæma innri úttekt á því hvernig ISO 9001 er í raun framfylgt í daglegum rekstri. ISO 19011:2026 leiðbeiningastaðallinn um innri úttektir leggur áherslu á kerfisbundna, óháða og hlutlæga úttekt byggða á gögnum.
Óháður úttektaraðili getur séð það sem starfsfólkið er hætt að sjá. Starfsfólk fyrirtækja og stofnana getur vanist misgóðu vinnulagi og gert lítið úr vandamálum. Einn af stærstu ávinningum er að vel þjálfaður úttektaraðili sér lengra en frávik og reynir að meta til um hvort að um kerfislægt vandamál sé að ræða. Þegar úttektaraðli er utanaðkomandi getur hann nýtt reynslu sína frá mörgum öðrum fyrirtækjum sem er sérstaklega verðmætt. Viðkomandi hefur séð mismunandi rekstrarferla, ólíkar tegundir gæðavandamála, margar góðar lausnir, algenga veikleika, þekkir mismunandi aðferðir til að mæla árangur og hvaða úrbætur virka best. Nýjar upplýsingar gefa stjórnendum nýtt sjónarhorn sem og að úttektin getu einnig leitt í ljós falinn kostnað.

