BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Gervigreindin tekur breytingum á hverjum degi á meðan alþjóðlegir staðlar taka oftast mörg ár í þróun.

Hvernig getur þá staðall sem kom út árið 2023 verið viðeigandi fyrir daginn í dag?

Svarið er að ISO 42001 staðallinn  hefur ekkert að gera með að lýsa tækninni eins og hún er heldur er hann hannaður sem stjórnunarkerfi.

Fyrirtæki sem innleiðir stjórnun gervigreindar, fylgist með árangri og áhættu og bætir stjórnunarkerfið stöðugt.

Stjórnendur fyrirtækja þurfa sífellt að spyrja eftirfarandi spurninga:

Hvað gerir gervigreindarkerfið?

Hvaða gögn notar það?

Hvað gæti farið úrskeiðis?

Hver ber ábyrgð?

Hvaða afleiðingar hefur röng niðurstaða?

Hvernig fylgjumst við með kerfinu?

Hvaða stýringar þurfum við?

Hvernig verða okkar viðbrögð þegar eitthvað breytist?

 

Hafðu samband