BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Almenningur þarf að vera meðvitaður um að hefðbundin svik eru orðin markvissari, persónulegri og trúverðugri með notkun gervigreindar.

Samkvæmt skýrslu ENISA (European Union Agency for Cybersecurity) frá árinu 2025 þá voru svokallaðar vefveiðar eða “phising” með notkun gervigreindar um 80% af svika- tilraunum. Það er einfaldlega þannig að það er mjög erfitt að sjá þegar um svik er að ræða.

Margir hugsa eflaust að þeir séu ekki nógu áhugaverðir til að vera skotmark netglæpamanna en í dag eru allir skotmark þar sem gervigreindin er sjálfvirk og hraðari en við getum ímyndað okkur.

Aðgangar að tölvupóstum, samfélagsmiðlum og bönkum eru jafn verðmætar upplýsingar fyrir netglæpamenn hver sem þú ert.

Persónuupplýsingar sem við deilum á samfélagsmiðlum eins og vinnustaðir, fjölskyldumeðlimir, áhugamál, afmælisdagar, vinalistar og svo framvegis geta auðveldlega verið notaðar til að svíkja með hjálp gervigreindar. Svikatilraunir eru því líklegri til að koma frá einstaklingum sem þú þekkir persónulega.

Ákveðin spilliforrit sem kallast “infostealer -malware” og leita að innskráningarupplýsingum geta auðveldlega komist í tölvur aðeins með því að niðurhala fölsuðum forritum eða með því að smella á einn skaðlegan hlekk. Aukin hætta getur myndast þegar einstaklingar nota sömu tölvu bæði í vinnu og einkalífi.

Gott ráð í þessu umhverfi er stoppa alltaf og hugsa áður en þú svarar skilaboðum. Ef skilaboðin valda stressi, spenningi, forvitini eða tilfinningu um að þú verðir að bregðast við þá skaltu ekki aldrei gera neitt strax. Staðfestu alltaf með þeim leiðum sem þú treystir.

Netöryggi fjallar um mannlega hegðun ekki bara vírusvarnir og sterk lykilorð.

Gervigreindin getur haft aðgang að öllum upplýsingum sem hún þarf til að virðast trúverðugur aðili eða stofnun. Það er ekki nóg að spyrja sig hvort að skilaboð líti út fyrir að vera raunveruleg. Núna er þörf á því að staðfesta í hvert einsta skipti.

 

 

 

 

Hafðu samband