BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Ný útgáfa af staðlinum ISO 9001:2006 kom formlega út 16.september síðastliðinn en markmið endurskoðunarinnar var að gera kröfurnar skýrari, auðveldari í notkun og betur aðlagaðar að síbreytilegu rekstrarumhverfi fyrirtækja og stofnana.

ISO 9001:2026 færir áhersluna frá  notkunar “gæðkerfis”  í notkun gæðastjórnunar sem hluta af stjórnun, menningu og stefnumótandi ákvarðanatöku fyrirtækisins.

 

  1. Gæðamenning í forgangi

Lögð er áhersla á að bæði stjórnendur og starfsfólk taki virkan þátt í að skapa gæðamenningu með daglegum ákvörðunum og vinnubrögðum.

Svara þarf eftirfarandi spurningum:

  • Hvernig sýna stjórnendur að gæði séu raunverulega forgangsmál?
  • Hvernig bregst starfsfólk við þegar það rekst á vandamál varðandi gæði?
  • Er starfsfólk hvatt til að tilkynna frávik?
  • Taka stjórnendur þátt í að leysa gæðavandamál?

 

  1. Skýrari skilgreining á áhættum og tækifærum

Áhersla á að gera áhættustjórnun gagnlegri og styrkja tengslin á milli:

  • Stefnu
  • Markmiða
  • Áhættu
  • Ákvörðunum
  • Aðgerðum
  • Árangur

 

  1. Gæðamálin tengd við stefnu og forystu

Stjórnendur eiga að nota gæðastjórnunarkerfið til að taka betri viðskiptaákvarðanir.

 

  1. Siðferðisleg hegðun skýrari

Áhersla á eftirfarandi þætti:

  • Að gefa betri upplýsingar um gæði vöru
  • Að fela ekki frávik
  • Að tryggja áreiðanlegar niðurstöður

 

Grunnkerfi ISO 9001 verður að mestu leyti það sama

Breytingarnar fela fyrst og fremst í sér í nákvæmari skýringar, uppfærslu á uppbyggingu og meiri áhersla er lögð á upptalin atriði.  Skoða þarf eftirfarandi atriði og spyrja sig eftirfarandi spurninga.

Gæðamenning            Hvernig taka stjórnendur ábyrgð á gæðum?

Starfsfólk                      Taka starfsmenn virkan þátt í umbótum?

Áhætta                           Er áhættumat raunverulega notað við ákvarðanatöku?

Stefna                             Er gæðastjórnunarkerfið tengt við viðskiptastefnu fyrirtækisins

Siðferði                           Er skýrt hvernig siðferðisleg hegðun tengist gæðum?

Ferlar                               Eru ferlar enn viðeigandi fyrir núverandi rekstur?

Umbætur                      Getur fyrirtækið sýnt raunverulegan árangur af umbótum?

 

Núverandi ISO 9001:2015 vottanir halda gildi sínu og gert er ráð fyrir þriggja ára umbreytingatímabili frá útgáfudegi.

 

 

 

 

Hafðu samband