BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík (gengið inn Barkarvogsmegin) | info@bsiaislandi.is | 414 4444

Innri úttektir samkvæmt staðlinum ISO 19011 hafa meðal annars til hliðsjónar neðangreindar  fræðikenningar

Umboðskenningin

(Agency theory – Jensen og Meckling, 1976)

Samband eigenda og stjórnenda og mögulega mismunandi hagsmuni þeirra. Þeir sem fela öðrum að taka ákvarðanir búa ekki yfir sömu upplýsingum né hafa sömu hagsmuni og þeir sem taka ákvarðanirnar.

Tenging við innri úttektir: Niðurstöður úttekta veita stjórnendum, stjórn og eftir atvikum eigendum óháðar upplýsingar um hvort starfsemin sé í samræmi við óskir stjórnar og hvort verklag og eftirlit virki eins og til er ætlast.

 Kerfiskenning og kerfishugsun

(Systems Theory / Systems Thinking)

Fyrirtæki er skoðað eins og heild þar sem fólk, ferlar, upplýsingakerfi, ábyrgð, birgjar og viðskiptavinir hafa áhrif hvert á annað.

Tenging við innri úttektir: Þegar mistök eiga sér stað er ekki aðeins leitað að einstaklingum, heldur er skoðað hvernig ferli og aðstæður leiddu til niðurstöðunnar.

Viðskiptakostnaðarkenningin

(Transaction Cost Economics- m.a. Oliver Williamson)

Kenningin fjallar um kostnað sem fylgir viðskiptum og samningum, vegna eftirlits, upplýsingaleitar, samhæfingar og óvissu í samskiptum við aðra aðila.

Tenging við innri úttektir: Niðurstöður úttekta eru tól fyrir stjórnendur fyrirtækja til að finna óþarfa flækjustig, endurtekna vinnu, óskýr samskipti og veikleika í stjórnun birgja til að mynda.

 Stofnanakenningar

(Institutional Theory)

Kenningarnar skýra hvernig fyrirtæki tileinka sér ákveðnar stjórnunaraðferðir vegna laga, staðla, faglegra viðmiða, væntinga viðskiptavina og viðurkenndra starfshátta.

Tenging við innri úttektir: Stjórnendur fyrirtækja innleiða ISO 9001 til að uppfylla kröfur markaðarins eða viðskiptavina. Niðurstöður úttekta sýna hvort að gæðakerfið sé raunverulega hluti af starfseminni eða fyrst og fremst skjalfest til að sýna fram á formlegt samræmi.

Þetta hjálpar til við að greina muninn á því að „hafa kerfi“ og því að nota það í daglegum rekstri.

Skipulagskenningar

(Organizational Learning — m.a. Chris Argyris og Donald Schön)

Starfsfólk fyrirtækja getur lært af mistökum og reynslu, en raunverulegt skipulagsnám felur í sér meira en að leiðrétta einstakt frávik.

Tenging við innri úttektir: Niðurstöður eiga að leiða til þess að starfsfólkið skilji orsök vandans, breyti viðeigandi ferlum og kanni hvort breytingin hafi skilað árangri.

Þetta tengist sérstaklega umbótahluta ISO 9001.

Kenningar um áhættu og innra eftirlit

(Risk management/Internal Control)

Þessar nálganir snúast um að greina óvissu, meta mögulegar afleiðingar og koma á eftirliti sem styður markmið stjórnenda.

Tenging við innri úttektir: Úttektaráætlun og umfang úttektar taka mið af því hvar áhætta er mest og hvaða ferli geta haft mest áhrif á gæði, viðskiptavini og rekstur.

 

 

Hafðu samband