Hér er stutt samantekt á reglunum um stafræn kerfi leigubifreiðastöðva
Meginmarkmið
- Auka öryggi farþega og ökumanna.
- Stuðla að neytendavernd.
- Gera Samgöngustofu kleift að hafa eftirlit með því að starfsemin fari fram samkvæmt lögum.
Kröfur til rekstrarleyfishafa
- Skrá GPS-staðsetningar um upphaf og lok hverrar seldrar ferðar.
- Tryggja að upplýsingar um ferðir skili sér í rafræna skrá leigubifreiðastöðvar.
- Hafa afgreiðslu hjá leigubifreiðastöð með starfsleyfi frá Samgöngustofu.
- Tryggja að allar greiðslur séu skráðar annaðhvort: í gjaldmæli, eða með öðrum fullnægjandi hætti þegar ferð er seld fyrir fyrirfram ákveðið heildargjald.
Upplýsingar sem leigubifreiðastöð verður að hafa
- Rekstrarleyfishafa sem tengjast stöðinni.
- Atvinnuleyfishafa sem aka fyrir þá rekstrarleyfishafa.
- Skráningarnúmer allra tengdra leigubifreiða.
- Gjaldmæla og raðnúmer þeirra.
- Greiðslufyrirkomulag og endanlegt verð fyrir fyrirfram umsamin gjöld.
- Fjölda lausra bifreiða, staðsetningu þeirra og þjónustusvæði.
Varðveisla og persónuvernd
- Safna skal gögnum sjálfvirkt og með stafrænum hætti.
- Staðsetningarupplýsingar skulu vera dulkóðaðar.
- Gögn skulu varðveitt í 60 daga frá akstri ferðar.
- Leigubifreiðastöðin er ábyrgðaraðili gagnanna.
- Óheimilt er að nota staðsetningar- eða persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem lög kveða á um.
Lög um leigubifreiðaakstur
Upplýsingar um úttektir á stafrænum kerfum
Úttektaraðilar stafrænna kerfa leigubílastöðva

