Umhverfisaðstæður
Þróun á ISO 14001:2026 staðlinum bendir til þess að nú er horft á umhverfi í breiðara samhengi.
Stjórnendur fyrirtækja þurfa að skoða með hvaða hætti umhverfisbreytingar hafa áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Skoða þarf í auknum mæli loftlagsbreytingar, mengun, líffræðilegan fjölbreytileika, náttúruauðlindir, aðstæður í nærumhverfi fyrirtækisins og hvernig þær hafa áhrif á fyrirtækið.
Aukin áhersla á lífsferilinn (life -cycle)
Meiri áhersla verður lögð á umhverfisáhrif yfir lífsferil vöru/þjónustu, ekki aðeins innan eigin starfsstöðvar. Stjórnendur þurfa að fylgjast nánara með: hráefnum, framleiðslu, flutning, notkun, förgun/endurvinnslu. Það mun hafa áhrif á innkaup, hönnun vöru, birgðastjórnun, flutninga, umbúðir, úrgang og endurvinnslu.
Ný krafa um breytingarstjórnun
Ný grein í staðlinum nr. 6.3 – Planning of changes bætir við sérstökum kröfum um skipulagningu breytinga. Þegar breytingar eru gerðar hjá fyrirtækjum í t.d. framleiðsluferli, vélakosti, hráefnum, byggingum, orkunotkun, birgjum, vörum, þjónustu og skipulagi þarf taka tillit til áhrifa á umhverfisstjórnunarkerfið og umhverfisárangur.
Áhætta og tækifæri skýrari
Skipulag áhættu og tækifæra hefur verið endurskipulagt og skýrt. Stjórnendur fyrirtækja þurfa nú að spyrja: “Hvað umhverfisáhætta getur haft raunveruleg áhrif á rekstur okkar og hvaða tækifæri getum við nýtt?”
Útvistuð starfsemi víkkuð
Áherslan færist frá eingöngu „outsourced processes“yfir í “externally provided processes, products and services”.Umhverfisáhrif fyrirtækisins tengjast einnig hráefnisbirgjum, flutningsaðilum, þjónustuaðilum, verktökum, orkuviðskiptum og aðkeyptri framleiðslu.
Áhersla á forystu og ábyrgð
Umhverfismál tengjast enn skýrar í stefnumótun og ábyrgð helstu stjórnenda í nýjum staðli. Umhverfismál eiga að vera hluti af stefnu, markmiðum, áhættumati, fjárfestingum, rekstri og árangri.
ISO 14001:2026 umhverifsstaðallinn breytir ekki grundvallarhugmyndinni um umhverfisstjórnun – en gerðar eru kröfur um að stjórnendur fyrirtækja horfi lengra, sérstaklega á breyttar umhverfisaðstæður, loftslagsbreytingar, líffræðilegan fjölbreytileika, lífsferil vöru og þjónustu, birgja, og sýni skýrar fram á raunverulegan umhverfisárangur.

