BSI á Íslandi ehf. | Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík | info@bsiaislandi.is | 414 4444

ISO 27001:2022 – Upplýsingaöryggi – Innri úttektir
Upplýsingaöryggi Innri úttektir ISO 19011

Frá

9. janúar, 2023

til

janúar 10, 2023

Námskeiðslýsing

Tveggja daga námskeið sem tryggir trausta undirstöðu í öllum þeim þáttum er snúa að ferli innri úttekta. Skref fyrir skref eru þátttakendur leiddir í gegnum skipulagða dagskrá sem inniheldur sambland af fræðilegum kenningum þar sem stuðst er við verklegar æfingar. Þannig er þátttakendum gert kleift að öðlast skilning á undirstöðuatriðum innri úttekta.

Markmið námskeiðs:
Að þátttakendur fái hagnýta reynslu í skipulagningu, framkvæmd, og skýrslugerð við úttektir á stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

 

Ávinningur námskeiðs

Fagleg nálgun við innri úttektir sem auðveldar fyrirtækjum að bera kennsl á núverandi og mögulega veikleika í upplýsingaöryggi. Þetta gerir fyrirtækinu kleift að grípa til aðgerða áður en skaðinn er skeður.

Efnisþættir námskeiðs:

  • Uppsetning og skilgreiningar á ISO 27001
  • Skilyrði fyrir upplýsingaöryggi
  • Skipulagning innri úttekta
  • Gerð gátlista
  • Framkvæmd innri öryggisúttekta
  • Niðurstöður og skýrslugerð
  • Innleiðing úrbóta
  • Eftirfylgni
  • Áframhaldandi umbætur
  • Verkefni í ISO 27001
  • Reynslusögur (Case Studies)
  • Umræðuhópar
  • Hópavinna

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er fyrir starfsmenn, æðstu stjórnendur ofl. skipulagsheilda sem eru með stjórnkerfi fyrir upplýsingaöryggi.

  • Þá sem bera ábyrgð á framkvæmd innri úttekta á stjórnkerfi upplýsingaöryggis
  • Stjórnendur sem vilja öðlast skilning á málefnum er varða upplýsingaöryggi
  • Starfsmenn innri úttekta
  • Fyrir þá sem vilja sérfræðiþekkingu og skilning á ISO 27001:2022
  • Starfsfólk með grunnþekkingu á stjórnunarkerfisstöðlum
  • Þá aðila sem vilja bæta árangur og verklag

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar
Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá 09:00 – 17:00
Námskeiðsgögn eru á ensku
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá BSI á Íslandi
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12 manns

Verð: 198.000 kr.
– innifalið kaffi, meðlæti og hádegismatur ásamt námskeiðsgögnum.

Viðskiptavinir BSI eru með 10% afslátt af námskeiðum.

20% afsláttur er veittur af öðrum þátttakanda ef þátttakendur eru fleiri en einn frá sama fyrirtæki/stofnun.

Þátttakendur fá skírteini frá BSI að námskeiði loknu.


Frekari upplýsingar er hægt að nálgasta á skrifstofu okkar í síma 414 4444 eða sendið tölvupóst á namskeid@bsiaislandi.is

Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15

Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!

info@bsiaislandi.is

414-4444

Hafðu samband