Kvörðunarþjónusta
Vottorð í samræmi við staðla

Víðtæk kvörðunarþjónusta
Vottorð í samræmi við staðal
Kvörðunarþjónusta BSI á Íslandi vinnur samkvæmt kröfum ISO 17025:2017 sem fela í sér almennar kröfur fyrir hæfni fyrir prófanir, kvarðanir og sýnistöku. Það inniheldur prófun og kvörðun samkvæmt stöðluðum og óstöðluðum aðferðum sem og aðferðum sem þróaðar eru fyrir rannsóknar- og tilraunastofur. Vottorð fyrir kvarðanir frá BSI á Íslandi fylgja kröfum ISO 17025 í öllum þáttum fyrir faggildar kvarðanir og að svo miklu leyti sem unnt er fyrir ófaggiltar kvarðanir. Kvörðunaraðferðir fyrir lóð, vogir og hitamæla hlutu faggildingu frá bresku faggildingarstofunni United Kingdom Accreditation Service (UKAS) þann 21.mars 2022 og fékk BSI á Íslandi faggildingarnúmerið 0823.
- Lóð
- Átakssköft
- Þrýstimælar
- Vogir
- Fjölmælar
- Lengdarmælar
- Rafhita- og glermælar
- Hitamælar með IR nema
- Lengdarmælar
- Hraðamælar
Kvörðunarþjónustan fer fram í Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík og er hægt að sækja um þjónustu á heimasíðu okkar eða hafa beint samband í síma 414 4444 / kvordun@bsiaislandi.is
Umsóknarferlið – Vottorð í samræmi við staðla.
Vottorð fyrir kvarðanir frá BSI á Íslandi fylgja kröfum ISO 17025 í öllum þáttum fyrir faggildar kvarðanir og að svo miklu leyti sem unnt er fyrir ófaggildar kvarðanir. Kvörðunaraðferðir fyrir lóð, vogir og hitamæla hlutu faggildingu frá bresku faggildingarstofunni United Kingdom Accreditation Service (UKAS) þann 21. mars 2022 og fékk BSI á Íslandi faggildingarnúmerið 0823.
Umsókn um kvörðunarþjónustu finnur þú hér:
Þjónustuver og netspjall
Við tökum vel á móti öllum spurningum og ábendingum til þess að geta bætt þjónustu okkar. Svo er líka alltaf gaman að fá hrós.
Þjónustuver og netspjallið er opið mán-fim: 8:30-16 og fös: 8:30-15
Ekki hika við að hafa samband, hlökkum til að heyra frá þér!